Doddi í Brooklyn

Saturday, July 07, 2007

Tjá tjá tjaaaaááááá

Nú erum við komin til Íslands.
Fyrsta sem við gerðum var að fara á Bæjarins Bestu. Remúlaði niður á geirvörtur.

Svo erum við líka ofissjallí orðin nú jorkers.
Sem er gott.

Hins vegar mun ég ekki setja inn myndir af nýju ibúðinni strax sökum drasls og kassa á öllum gólfum. Ég lofa að setja inn myndir þegar við verðum búin að koma okkur almennilega fyrir í ágúst.

Við fórum á Jómfrúna í hádeginu og löbbuðum smá í bænum. Hittum bönns af liði. Sem er einn af helstu kostunum við Reykjavík. Maður hittir alltaf einhvern sem maður þekkir ef maður fer niðrí bæ.

Annars er Ísland ansi lítið og sætt bara.

Takk fyrir allar kveðjurnar vinir mínir.