Doddi í Brooklyn

Friday, January 25, 2008

Anna Katrín systir mín var að eignast (litla) stúlku í gær, þann 24. janúar kl 23:50. Hún var 18 merkur og 52 cm. Ég er stoltur frændi í dag, sem og aðra daga :) Jibbibbíkóla og innilega til hamingju elsku Anna og Alex.

Tuesday, January 22, 2008

Meira bíómyndavæl.

Var að sjá Once á vídjó og er hún helber snilld. Músíkin alveg frábær. Meirasegja það góð að ég snáfaði í snatri á amazon og keypti sándtrakkið. Sem gerist aldrei. Ég kaupi mjööööög sjaldan geisladiska, því síður sándtrökk. Það er líka miklu þægilegra að stela því bara á netinu.

Hvað um það, allir virðast vera hressir á Íslandi þessa dagana heyrist mér. Pólitíkin og handboltinn að gera fína hluti.

Svo ætla ég að fara að baka bananabrauð á eftir svo að bananarnir fari ekki til spillis. Það viljum við nú ekki.

Jæja, allir að drífa sig að fá sér ónýtan mat, alveg kominn tími á það.