Doddi í Brooklyn

Thursday, December 13, 2007

Jó.
Við keyptum okkur jólatré í fyrradag.
Eða, kannski meira svona jólarunna.
Sem er gott.
Jólarunninn okkar er mjög sætur og stendur ofan á borði svo hann fái ekki minnimáttarkennd.
Við eigum eftir að kaupa seríu á hann, en það verður að vera minnsta sérían sem hægt er að fá svo að það sjáist eitthvað í greinarnar.

Ég elska tekknó.
En bara ef það kemur úr búðinni á neðri hæðinni stöðugt allan daginn.

Bæ.