Doddi í Brooklyn

Sunday, May 18, 2008

Jæja, þá er það loksins orðið opinbert:

Ég er búinn að missa vitið.

Vitfirringin náði algjöru hámarki fyrr í dag, er ég fór og lét vaxa á mér bakið og axlirnar....

Ert'ekki að fokking grínast!!!!!

Þarna lá ég, sjálfviljugur, og lét pynta mig sem aldrei fyrr með heitu vaxi og taustrimlum.

Þarna kynntist ég sársauka sem ég hélt að væri bara til í bíómyndunum.

En svo var ekki.

Svitinn spratt út sem á garðúðara og fæturnir spörkuðust óstjórnlega í allar áttir svo að vaxkonan/sadistinn átti í vök að verjast.

Einnig var lítið eftir af læknapappírnum sem var á bekknum áður en ég lagðist. Hann var allur rifinn og kurlaður upp í litla svitablauta hnoðra.

Svo var mér sagt að "eðlilegt" fólk gerði sjálfu sér þetta á 2ja til 3ja vikna fresti!

Já sæll.


Anyway,
fórum á Kanye West/N.E.R.D/Rhianna/Lupe Fiasco um daginn.
Þvílík fökkin snilld!!! Kömm eftir kömm eftir kömm. Enginn fékk neitt við það ráðið. Allir skulu snáfa á þessa tónleika. Skiptir þá land sem búið er í engu máli. Snáfið bara.

Annars eru bara allir hressir hérna held ég. Það er búið að vera einhver mega hátíð hérna í breiðgötunni í dag. Allir að kaupa ís og fara í leiktæki og eitthvað. Uppáhaldið mitt hlýtur þó að vera dýrlingurinn sem er að selja eitthvað drasl hérna beint fyrir utan gluggann og er búinn að vera með "Besa Me" á blasti og rípít í allan dag. Húrra fyrir honum.