Doddi í Brooklyn

Thursday, June 12, 2008

Allt í einu eru allir búnir að eignast börn!!!!

Innilega til hamingju með nýju prinsana elsku Erlen og Kiddi, og Brynja og Hinrik


Annars er ég bara fínt hress á kjentinum. Reyndar alltof heitt þessa dagana hér í NY. Ég get ekki farið út án þess að verða pissandi sveittur og allur klístraður og viðbjóðslegur. Reyndar hjálpar að hafa farið í vax um daginn, því nú verð ég ekki alveg eins sveittur á bakinu. Svitna bara þeim mun meira á maganum. Gleði.

Hvað meir?

Ummmm.

Fékk massívt Fruit Loops craving í gær og smellti mér út á horn og splæsti í pakka af slíkum óbjóði. Fór svo heim og fékk mér Fruit Loops. Og kláraði pakkann...
Mér finnst ég eiga skilið bikar að launum fyrir þennan ótrúlega árangur.

Bless.